Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Dagbjartur hefur leik á lokaúrtökumóti U.S. Open – í holli með Padraig Harrington

Dagbjartur Sigurbrandsson, kylfingur GR, tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á morgun, mánudaginn 2. júní, á Kinsale Golf & Fitness Club vellinum í Columbus, Ohio. Í holli með Dagbjarti er þrefaldi risamótsmeistarinn Padraig Harrington og Svíinn Alex Noren, sem er með 10 sigra á Evrópumótaröðinni. Dagbjartur fer af stað klukkan 7:40 að staðartíma (11:40 að íslenskum tíma). 67 kylfingar munu berjast um nokkur laus sæti, en undankeppnin í Columbus er þekkt fyrir að vera ein sú allra erfiðasta. Ástæðan fyrir því er að Memorial mótið á PGA mótaröðinni sem lýkur í kvöld er einnig haldið í Ohio. Margir kylfingar sem eru ekki með þátttökurétt á U.S. Open nýta sér stutta ferðalagið og mæta beint í úrtökumótið. Ljóst er að samkeppnin verður hörð.

Dagbjartur tryggði sér sæti í lokaúrtökumótinu eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í Illinois. Þar léku 120 kylfingar um sex laus sæti í lokaúrtökumótinu, og komst Dagbjartur inn eftir fimm manna bráðabana, þar sem tvö sæti voru laus.

Margir þekktir kylfingar taka þátt í lokaúrtökumótinu í Ohio. Meðal þeirra eru:

  • Matt Kuchar
  • Rickie Fowler
  • Max Homa
  • Cameron Young
  • Padraig Harrington
  • Alex Noren
  • Thomas Lehman

Golfsambandið náði á Dagbjarti fyrr í vikunni og spurði hann nokkurra spurninga.

Þú komst í gegnum síðasta úrtökumót eftir þriggja holu bráðabana – hvernig undirbýr maður sig fyrir slíka spennu og heldur þú að sú reynsla hafi mögulega búið þig enn betur undir mótið í Ohio?

Já klárlega góður undirbúningur fyrir næsta mót í Ohio. Ég kláraði hringinn snemma um 2 leitið og var að bíða eftir bráðabananum sem byrjaði ekki fyrr en 19:30 og við kláruðum um hálf níu. Það var orðið mikið myrkur og maður sá lítið. Það var gaman að sjá boltann fara ofan í á 3 holu. Annars höfðum við þurft að koma aftur um morgun til að klára. Ég lendi í svipuði fyrir ári síðan og beið eftir bráðabana svo ég vissi hvað ég var að fara út í . Auðvelt er að detta í hugsanir um hvað maður hefði getað gert öðruvísi, en það breytir engu. Best er að læra og halda áfram. Fékk mér góðan hádegismat í St. Louis og náði að restarta mentally.

Maður lærir mikið á sjálfan sig hverning líkaminn og hugurinn bregðast undir pressu. Það er mikilvægt að vera með góða næringu, drekka nóg af vatni og síðan fókusa á öndunina í svona slíkri spennu með jákvætt sjálfstal og einbeita sér eitt högg í einu.

Úrtökumótið í Columbus er þekkt fyrir að vera eitt það erfiðasta – hvernig ert þú að nálgast undirbúninginn til að mæta, og sigra, þessu stóru nöfn í golfheiminum?

Já það er virkilega gaman að sjá nafnið mitt við hliðina á mörgum af þessum frábæru leikmönnum. Maður hefur lengi dreymt um að keppa við þá síðan maður var yngri, svo það er virkilega spennandi að fá tækifæri til þess núna.

Hef átt góðan undirbúning fyrir mótið og Gunnlaugur Árni kom til Missorui að æfa og spila í nokkra daga.

Síðan er ég mest að fókusa á hlutina sem ég hef stjórn á, vera jákvæður og hafa gaman út á velli.

Hvaða styrkleika í þínum leik telur þú að geti gefið þér forskot á þessum velli, og hvað er mikilvægt að hafa í huga til að skora vel?

Það er alltaf best á vera á brautinni og hitta sem flest grín sem mun hjálpa við skora vel. Hef verið að vinna að bæta driverinn og æfa vel í kringum gríninn sem hefur gengið vel og hef verið að rúlla honum vel á grínunum. Innáhögginn verða mikilvæg. Það skiptir miklu máli að vera þolinmóður á 36 holu dögunum og vera með góða næringu út á velli. Svona langir dagar taka vel á andlegu hliðina og er spenntur fyrir þeirri áskorun.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Áfram Dabbi!

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu GSÍ – Dagbjartur hefur leik á lokaúrtökumóti U.S. Open – í holli með Padraig Harrington – Golfsamband Íslands