Opna FJ 2022 verður haldið á Grafarholtsvelli mánudaginn 1. ágúst. Ræst verður út frá kl. 8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og besta skor í karla og kvennaflokki. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut.
Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox kl. 14:00 föstudaginn 22. júlí - Mótsgjald er kr. 5.700 og greiðist við skráningu.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjá efstu í punktakeppni karla og kvenna auk verðlauna fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki:
Punktakeppni karla:
1.sæti: FJ HydroLite regnjakki og regnbuxur
2.sæti: FJ Fuel golfskór og golfsokkar
3.sæti: FJ Chill eða LW golfpeysa og golfbolur
Punktakeppni kvenna:
1.sæti: FJ HLV2 regnjakki og regnbuxur
2.sæti: FJ Fuel golfskór og golfsokkar
3.sæti: FJ Chill eða LW golfpeysa og golfbolur
Besta skor karla: FJ Fuel golfskór og FJ Chill eða LW golfpeysa
Besta skor kvenna: FJ Fuel golfskór og FJ Chill eða LW golfpeysa
Nándarverðlaun:
2.braut: FJ regnhlíf
6.braut: FJ regnhlíf
11.braut: FJ regnhlíf
17.braut: FJ regnhlíf
18.braut: FJ regnhlíf
Lengsta teighögg á 3. braut:
Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása
Allir keppendur fá afhenta teiggjöf áður en leikur hefst.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland og er með netfangið dora@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við ÓJK-ÍSAM ehf. og FJ.