Opnunarmót Grafaholts leikið laugardaginn 14. maí – skráning hefst á fimmtudag kl. 10:00

Eins og áður hefur verið tilkynnt þá mun Grafarholtsvöllur opna formlega laugardaginn 14. maí. Veðurguðirnir hafa verið að stríða okkur framan af vikunni en útlitið er betra en á horfðist og verður Opnunarmót Grafarholts leikið á laugardag, hafa þá báðir vellir félagsins verið opnaðir formlega fyrir sumarið.

Skráning í mótið hefst fimmtudaginn 12. maí kl. 10:00 og fer fram í gegnum mótaskrá í Golfbox – mótsgjald er kr. 3.700 og greiðist við skráningu. Mótið er innanfélagsmót. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.

ATH! Opnað verður fyrir almenna rástímaskráningu á Grafarholtsvöll í kvöld, miðvikudag kl. 20:00.

Umferð golfbíla verður ekki leyfð á vellinum fyrst um sinn en verður það tilkynnt þegar þar að kemur.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki og verðlaun fyrir besta skor.

Skráning í mót
Félagsmenn skrá sig í mótaskrá á Golfbox ásamt þeim sem þeir vilja hafa með sér í holli.

ATHUGIÐ! Til þess að skrá meðspilara ÞARF að hafa aðildanúmer viðkomandi og skrá það inn, þegar aðildanúmer hefur verið slegið inn er smellt á „Leita“ áður en haldið er áfram.

Rástímar læsast í 180 sekúndur á meðan verið er að reyna að skrá sig, sem þýðir að ef þið sjáið læsta rástíma verðið þið að sýna þolinmæði og hinkra þar til hann aflæsist.

Verðlaun í Opnunarmóti Grafarholts:
Forgjöf 0 – 14
1. sæti: Footjoy peysa og bolur
2.sæti:  Footjoy peysa
3.sæti:  Footjoy bolur

Forgjöf 14,1 – og hærra
1.sæti: Footjoy peysa og bolur
2.sæti: Footjoy peysa
3.sæti: Footjoy bolur

Besta skor:
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur

Nándarverðlaun á öllum par 3: Gullkort í Bása

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is