Haraldur Franklín, Guðmundur Ágúst og Axel hófu leik á Danish Golf Challenge í dag

Haraldur Franklín Magnús, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Axel Bóasson eru á meðal keppenda á Danish Golf Challenge sem fram fer í Óðinsvé í Danmörku. Keppt er á
Odense Eventyr golfvellinum dagana 23.-26. maí 2024.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Haraldur Franklín hóf leik í dag kl. 11:30 að íslenskum tíma, Axel kl. 11:50 og Guðmundur Ágúst kl. 13:10.

Haraldur Franklín hefur tekið þátt á sex mótum á tímabilinu en hans besti árangur á árinu er 9. sæti á móti sem fram fór í Abú Dabí í lok apríl. Hann er í 57. sæti stigalistans á Challenge Tour – nánar hér

Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu fjórða móti á tímabilinu á þessari mótaröð.

Hér má sjá rástíma, skor og stöðu keppenda í mótinu

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Danmörku það tíunda á þessu tímabili.

Við óskum þeim Haraldi, Guðmundi og Axel alls hins besta á móti helgarinnar!

Golfklúbbur Reykjavíkur