Arnar Snær býður upp á helgarnámskeið dagana 6. og 7. júlí. Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið 1 (09:00-11:00)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið er fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 09:00-11:00. Námskeiðið er laugardaginn 6.júlí og sunnudaginn 7.júlí og verður í Básum, Grafarholti
Verð 22.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2 (11:00-13:00)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið er fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 11:00-13:00. Námskeiðið er laugardaginn 6.júlí og sunnudaginn 7.júlí og verður í Básum, Grafarholti
Verð 22.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Stuttaspilsnámskeið (13:00-15:00)
Frábært námskeið fyrir alla almenna kylfinga sem vilja fá betri þekkingu og æfingar þegar kemur að stuttaspilinu. Á laugardeginum tökum við fyrir vipp og pútt og glompuhögg og förum yfir hvernig við leysum allskonar „vandræða“ legur sem koma upp í kringum flatirnar. Námskeiðið er tveir tímar (2x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum 6.júlí frá klukkan kl. 13:00-15:00 og verður í Básum, Grafarholti
Verð 11.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is