Liðakeppni GR er lokið þetta árið en keppnin hefur staðið í allt sumar.
Liðakeppninni svipar til sveitakeppni og í hverjum leik keppa 6 leikmenn, þar sem tveir leika gegn tveimur í fjórleik sem við þekkjum líka sem betri bolta. Hinir fjórir leikmenn hvort liðs leika gegn hvorum öðrum í holukeppni eða tvímenning.
Sextán lið léku í fjórum riðlum þar sem öll liðin léku innbyrðis. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komust áfram í átta liða úrslit. Í átta liða úrslitum mættust eftirtalin lið.
Ásar gegn Kötlum
Lið nr. eitt gegn Golf 110
Brassar gegn Tíunum
Minkurinn gegn Möskva
Þess má geta að margir leikmanna Golf 110 eru kvæntir leikmönnum Tíanna. Þar sem Golf 110 datt út í 8 liða úrslitum gátu hjónin ekki mæst í keppninni. Tíurnar komust áfram en mættu líka liði nr. eitt og þarf við sat, því lið nr. eitt sigraði og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Ásar og Kötlur voru með sömu hjónatengingar og fyrr nefndu liðin tvö og þar þurfti bráðabana til að skera úr um úrslit en Kötlur höfðu þar betur.
Í æsispennandi úrslitaleik sem fór í bráðabana sigruði Lið nr. 1 og kláraðist leikurinn með fuglapútti sem sett var í af löngu færi.
Við þökkum ÍSAM sem var styrktaraðili mótsins, en leikmenn beggja liða fengu glæsilega golfboli frá FootJoy.
Meðfylgjandi eru myndir úr úrslitaleiknum og afhendingu verðlauna.