Mercedes-Benz bikarinn – Holukeppni GR verður á dagskrá í sumar eins og undanfarin ár. Styrktaraðili keppninnar er Bílaumboðið Askja.
Félagsmenn skrá sig til leiks með því að fara í mótaskrána á golf.is eða innskrá sig beint í Golfbox. Keppni hefst í næstu viku. Dregið verður um það í kerfinu hverjir mætast í fyrstu umferð. Sigurvegari úr hverjum leik kemst í næstu. Hámarksfjöldi keppenda er 128. Leiknar verða þrjár umferðir fyrir meistaramót. Hlé verður gert á mótinu í júlí en 16 manna úrslit hefjast eftir Verslunarmannahelgi. Mótinu lýkur með úrslitaleik um mánaðamótin ágúst og september.
Skráning í keppnina hefst á morgun, þriðjudag 24. maí klukkan 12:00. Þátttökugjald er kr. 1.500 krónur og greiðist við skráningu.
Þetta er skemmtileg keppni sem er opin fyrir alla félagsmenn GR, konur og karla, 19 ára og eldri og hvetjum við kylfinga á öllum getustigum til að taka þátt. Leikið er með fullri forgjöf upp að 36 sem er hæsta leikforgjöf sem veitt er í þessu móti.
Keppendur velja sér teiga við hæfi og fá forgjöf samkvæmt þeim teigum sem leikið er af.
Mótstjóri Mercedes-Benz bikarsins – Holukeppni GR er Atli Þór Þorvaldsson og er hægt að hafa samband við hann í gegnum netfangið atli@grgolf.is eða í síma 894-2811.
Golfklúbbur Reykjavíkur