Opna Icelandair verður haldið á Korpúlfsstaðavelli laugardaginn 15. júní. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og verður Leikið í tveimur flokkum, karla- og kvennaflokki. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Lykkjur mótsins verða Landið/Áin.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor og nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Keppendur fá afhenta léttan nestispakka ásamt teiggjöf út á völl.
Verðlaun í Opna Icelandair:
Kvennaflokkur
- 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Karlaflokkur
- 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Besta skor: 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair og hringur fyrir fjóra á völlum GR
Nándarverðlaun:
- 13.braut: 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 17.braut: 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 22.braut: 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 25.braut: 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
Skráning fer fram á Golfbox og hefst kl. 13:00, miðvikudaginn 5. júní. Mótsgjald kr. 6.400 greiðist við skráningu.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Icelandair