Laugardaginn 17. maí mun Grafarholtsvöllur opna með formlegum hætti og fer opnun fram, eins og venja er, með Opnunarmóti Grafarholts. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.
ATH! Opnunarmót eru eingöngu ætluð félagsmönnum GR.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins og að auki verða veitt verðlaun fyrir besta skor.
Boðið verður upp á fría upphitunarbolta í Básum fyrir keppendur og hvetjum við alla til að nýta sér það.
Skráning í Opnunarmót Grafarholts hefst á miðvikudaginn 14. maí kl. 11:00
Skráning í mótið fer fram í gegnum mótaskrá Golfbox, til þess að skrá meðspilara er hægt að nota aðildanúmer eða kennitölu viðkomandi.
Við vekjum athygli á því að golfverslun í Grafarhotli hefur ekki opnað fyrir komandi tímabil og er því eingöngu hægt að skrá sig í gegnum vefinn.
Almenn rástímaskráning hefst á fimmtudag
Opnað verður fyrir almenna rástímaskráningu fyrir Grafarholt kl. 10:00 fimmtudaginn 15. maí. Við bendum félagsmönnum okkar á að fara yfir aðgangsupplýsingar sínar á Golfbox fyrir komandi sumar.
Grafarkotsvöllur og æfingasvæði við báða velli opnaði samhliða opnun Korpu liðna helgi og er því opið fyrir golfsumarið.
Veitingasala Klúbbhús í Grafarholti opna samhliða opnun vallarins laugardaginn 17. maí og verður opin frá kl.7:30 alla daga eins venja hefur verið.
Við munum opna fyrir golfbílaumferð samhliða opnun, laugardaginn 17. maí.
Verðlaun í Opnunarmóti Grafarholts:
Forgjöf 0 – 14
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur
Forgjöf 14,1 – og hærra
1.sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur
Besta skor:
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins: Gullkort á æfingasvæði Bása.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Sigríður Guðmundsdóttir, sigridur@grgolf.is