Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Opnunarmót Grafarholts verður leikið laugardaginn 18. maí – skráning hefst á þriðjudaginn 14. maí

Laugardaginn 18. maí opnar Grafarholtsvöllur fyrir golfsumarið 2024 og hefst eins og venja er með Opnunarmóti Grafarholts. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins og að auki verða veitt verðlaun fyrir besta skor.

Skráning í Opnunarmót Grafarholts hefst á þriðjudaginn 14. maí kl. 13:00 og fer fram í gegnum Golfbox, greiða þarf við skráningu. Við vekjum athygli á því að eingöngu er hægt að skrá sig í mót gegnum Golfbox.

ATH! Opnunarmót eru eingöngu ætluð félagsmönnum GR.

Almenn rástímaskráning í Grafarholt hefst á miðvikudag
Opnað verður fyrir almenna rástímaskráningu í Grafarholt kl. 10:00 miðvikudaginn 15. maí og er þar með búið að opna fyrir skráningu á öllum völlum félagsins fyrir golfsumarið 2024.

Veitingasala Klúbbhús í Grafarholti mun einnig opna laugardaginn 18. maí og verður opin frá kl. 7:30 alla daga eins venja hefur verið.

Tilkynningar vegna umferðar golfbíla á vellinum verður kynnt þegar nær dregur opnun.

Skráning í mótið
Skráning í mótið fer fram í gegnum mótaskrá Golfbox, til þess að skrá meðspilara er hægt að nota aðildanúmer eða kennitölu viðkomandi.

Verðlaun í Opnunarmóti Grafarholts:
Forgjöf 0 – 14
1. sæti: GR merkt 90 ára Footjoy peysa og bolur
2.sæti:  GR merkt 90 ára Footjoy peysa
3.sæti:  GR merktur 90 ára Footjoy bolur

Forgjöf 14,1 – og hærra
1.sæti: GR merkt 90 ára Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt 90 ára Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur 90 ára Footjoy bolur

Besta skor: GR merkt 90 ára Footjoy peysa og bolur

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins: Gullkort á æfingasvæði Bása.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1
 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is