Þó að dagsetning opnunar sé ekki enn orðin ljós þá er öruggt að það styttist í að vellir félagsins opni. Síðastliðinn laugardag héldum við opið hús þar sem meðal annars var hægt að nálgast pokamerkin. Dagurinn var vel sóttur af félagsmönnum og leyndi tilhlökkunin sér fyrir komandi sumri ekki.
Pokamerki GR 2023 eru tilbúin til afhendingar og er hægt að nálgast þau á skrifstofu alla virka daga frá kl. 09-16. Pokamerkin verður einnig hægt að nálgast í golfverslunum þegar vellir félagsins hafa opnað.
Golfklúbbur Reykjavíkur