Ragnhildur „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, var meðal þátttakenda á Swedish Strokeplay Championship og hafnaði þar í 2. sæti aðeins höggi á eftir efsta kylfingi. LET Access mótaröðin er næststerkasta mótaröðin á meðal atvinnukylfinga í Evrópu.
Leikið var í Svíðþjóð, eins og nafnið gefur til kynna og var leikið á Golf Uppsala Soderby golfvellinum. Verðlaunafé mótsins var um 6,5 milljónir króna og vann Ragga sér inn um 680 þús. íslenskra króna eða 4.770 evrur.
Hún hefur með þessu jafnað besta árangur íslensks kylfings á mótaröðinni frá upphafi, en Valdís Þóra Jónsdóttir á einnig best 2. sætið.
Ragga byrjaði mótið vel, lék fyrsta hringinn á 71 höggi, tveimur undir pari vallarins. Hún hitti fimmtán grín á hringnum, fékk fjóra fugla og kom sér í góða stöðu.
Annan hringinn lék Ragga á tveimur yfir pari. Aðstæður reyndust kylfingum erfiðar þann daginn, og var meðalskorið töluvert síðra en aðra keppnisdaga. Hún hitti tólf grín og fékk fimm fugla, en holur sjö og níu reyndust dýrar.
Síðasta hring mótsins lék Ragga á 68 höggum, fimm undir pari. Hún lék best allra kylfinga og kórónaði þennan glæsilega hring með löngu arnarpútti á átjándu flötinni. Ragga flaug upp í 13. sætið með árangrinum en efstu sjö kylfingarnir í lok tímabilsins fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðinni á næsta tímabili, og var þetta svo sannarlega skref í þá átt.
ÁFRAM GR!