Góðgerðarmótið Einvígið á Nesinu fór fram á Nesvellinum í dag, mánudaginn 4. ágúst. Tómas Eiríksson Hjaltested stóð uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi lokaholu þar sem hann setti niður 5 metra langt fuglapútt og sló þar með Aron Snæ úr keppni.
Venju samkvæmt er 10 bestu kylfingum landsins boðin þátttaka. Þetta var í 29. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni, í ár slógust þau í hópinn Riddarar kærleikans og léku í þágu Minningarsjóðs Bryndísar Klöru
Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins. Uppáhaldslitur Bryndísar Klöru var bleikur og keppendur létu sitt ekki eftir liggja þar og mættu öll með eða í einhverju bleiku.
Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þeir Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Jóhann Möller frá Arion banka þeim Birki Karli Óskarssyni og Iðunni Eiríksdóttur, foreldrum Bryndísar Klöru, ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-
Úrslit urðu annars eftirfarandi:
- sæti: Tómas Eiríksson Hjaltested
- sæti: Aron Snær Júlíusson
- sæti: Hulda Clara Gestsdóttir
- sæti: Axel Bóasson
- sæti: Haraldur Franklín Magnús
- sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
- sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
- sæti: Heiðar Steinn Gíslason
- sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson