Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Meistaramót GR 2024 – skráningu lýkur kl. 12:00 á morgun

Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur 2024 hefst á sunnudag og verður leikið dagana 7. – 13. júlí . Keppni fer fram á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli, Sjórinn/Áin, líkt og undanfarin ár. Sunnudaginn 7. júlí til þriðjudagsins 9. júlí leika allir barna- og unglingaflokkar, 50 ára og eldri karlar í forgjafarflokkum 10,5 og hærra, 50 ára og eldri konur í forgjafarflokkum 16,5 og hærra. Þá leika einnig 3. og 4. flokkur karla og kvenna og 5. flokkur karla. Þessir flokkar leika þriggja daga mót eða 54 holur.

Miðvikudaginn 10. júlí til laugardagsins 13. júlí leika karlar 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-10,4 og konur 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-16,4, 2.flokkur karla og kvenna, 1.flokkur karla og kvenna og Meistaraflokkur karla og kvenna. Þessir flokkar leika fjögurra daga mót eða 72 holur.

Nánari skiptingu flokka er að finna hér – Meistaramót

Keppendur 18 ára og yngri leika í sínum aldursflokki nema að þeir hafi meistaraflokksforgjöf þá er þeim heimilt að leika í Meistaraflokki.

Í meistaramótsviku verður keppendum boðið upp 50 bolta fötu í Básum til upphitunar alla mótsdaga og hvetjum við alla til að nýta sér það.

Skráning í mótið stendur nú yfir og fer fram í mótaskrá á Golfbox. Skráningu lýkur fimmtudaginn 4. júlí kl.12:00 – greiða þarf mótsgjald við skráningu. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar og skemmtun í lokahófi á laugardagskvöldi.

Athugið!
Hámarksfjöldi í hvern flokk er 90 manns, ef full skráning verður ekki í alla flokka er hægt að fjölga í öðrum flokkum. Raðað er inn í flokka eftir skráningartíma. Sú forgjöf sem kylfingar eru með þegar skráningu lýkur, gildir í mótinu.

Mótsgjöld:
4ra daga mót, 72 holur = 12.900 kr.
3ja daga mót, 54 holur = 11.900 kr.

Börn og unglingar 
B&U 3ja daga mót, 54 holur = 9.000

Allar upplýsingar um Meistaramót, áætlaða rástíma og skiptingu flokka, er að finna á hér á vefnum undir „Golf – Meistaramót“

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1
 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.