Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst á Opna portúgalska meistaramótinu

Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar eru meðal þátttakenda á Opna portúgalska meistaramótinu sem verður leikið dagana 15.-18. september á Royal Óbidos vellinum í Portúgal.

Opna portúgalska meistaramótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, Challenge Tour, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu. Lokakafli mótaraðarinnar er framundan en lokamótið fer fram í byrjun nóvember á Mallorca. Fram að lokamótinu eru sex mót á dagskrá að Opna portúgalska meðtöldu.

Haraldur Franklín er í 88. sæti á stigalistanum og Guðmundur Ágúst í 86. sæti, þeir eru báðir í harðri baráttu um að komast í hóp 45 stigahæstu keppenda á Áskorendamótaröðinni – sem fá keppnisrétt á lokamótinu. Þar verður keppt um 20 sæti á sjálfri Evrópumótaröðinni.

Hér má fylgjast með rástímum, skori og stöðu keppenda í móti helgarinnar

Við sendum góðar kveðjur á strákana í Portúgal!
Golfklúbbur Reykjavíkur