Einstök upplifun, einstakt tækifæri og einstakt verð!
Icelandair Vita býður félagsmönnum GR sértilboð í 11 nátta lúxus golfferð til Tyrklands á Gloria Golf Resort í Belek. Um er að ræða frábært fimm stjörnu hótel og eitt flottasta og virtasta golfsvæði Belek. Á svæðinu eru þrír golfvellir eða 45 holur og allt innifalið í mat og drykk ásamt golfbíl. Flogið er í beinu leiguflugi með Icelandair til Antalya.
Gloria Golf Resort býður upp á tvo 18 holu golfvelli – Old course og New course ásamt 9 holu velli í fullri lengd – Verde course. Gamli völlurinn – Old course opnaði í september 1997 og er hannaður af franska golfvallahönnuðinum Michel Gayon. Old course er einn elsti golvöllur Tyrklands og er hann mjög vinsæll enda margir kylfingar sem koma árlega til að spila þennan glæsilega völl. Á æfingasvæðinu má finna 48 bása á tveimur hæðum með Trackman tækninni.
Á hótelinu eru herbergin nútímaleg, rúmgóð og vel búin. Öll herbergi Vita eru í aðalbyggingu hótelsins sem var endurnýjað síðast liðið haust 2024. Hótelið er frábærlega staðsett í furuskógum við rætur Taurus-fjallanna alveg við ströndina. Gloria Golf Resort býður upp á frábæra valkosti af veitingastöðum og börum í glæsilegu umhverfi þar sem allir ættu að geta fundið sér mat og drykk. Allur matur á hlaðborðum er innifalinn ásamt drykkjum.
La Source SPA & Wellness er framúrskarandi heilsulind sem er á Gloria Golf Resort. Í afslappandi umhverfi er að finna sex nudd herbergi og úrval af lúxusmeðferðum. Auk heilsulindarinnar eru fjölmargar sundlaugar og önnur frábær afþreying fyrir gesti s.s. líkamsræktarsvíta, fótboltaaðstaða, vatnsíþróttir, tennis og hið geysivinsæla padel ásamt annarri afþreyingu.
ATH! Takmörkuð sæti eru í boði í ferðina og bókunarfrestur er til 15. júní næstkomandi. Reglan er fyrstir koma fyrstir fá!
559.900 kr á mann í tvíbýli
659.900 kr í einbýli
• Beint flug til og frá Antalya með Icelandair
• Gisting á Gloria Golf resort í aðalbyggingu hótels
• 8 x 18 holu golfhringir á Old og New course til skiptis með golfbíl
• Allur matur og drykkir á Gloria hóteli, klúbbhúsi Gloria og buggy bar úti á golfvelli
• Akstur milli flugvallar og hótels
• Íslensk fararstjórn – Sigurpáll Geir Sveinsson PGA kennari og Gylfi Kristinsson (báðir eru þeir fyrrverandi íslandsmeistarar í golfi og hafa báðir unnið á Gloria áður í fararstjórn)
Allar nánari upplýsingar má finna með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan