
Páskaopnun GR
Fyrir þá kylfinga sem ætla að nota páskana til að skerpa á sveiflunni fyrir komandi golfsumar, er gott að hafa á hreinu opnunartímana okkar yfir páskana en þeir eru sem hér segir: Inniæfingaaðstaða á Korpu: Opið alla páskana frá kl. 8:00-22:00. Þar er tilvalið að æfa stutta spilið, vippa og pútta. Thorsvöllur: Thorsvöllurinn okkar er […]

Úrsagnarfrestur og endurgreiðsla félagsgjalda
Frestur til að segja sig úr Golfklúbbi Reykjavíkur rennur út 28. febrúar ár hvert. Úrsögn sem berst eftir 1. mars veitir ekki rétt til endurgreiðslu félagsgjalda, nema gegn framvísun læknisvottorðs. Mikilvægt: Félagsmenn sem sjá sér ekki fært að vera í klúbbnum sumarið 2025 eru beðnir um að láta vita fyrir 28. apríl 2025. Athugð að félagsmenn […]

Framkvæmdir í Básum – Breyttur opnunartími
Kæru félagsmenn, Miðvikudaginn 9. apríl hefjast umfangsmiklar framkvæmdir í Básum. Framkvæmdirnar fela í sér jarðvegsskipt um 8.000 fermetra svæði og lagningu nýs gervigrass. Við áætlum að verkið taki 2–3 vikur. Á meðan á framkvæmdum stendur verður opnunartími Bása breyttur á virkum dögum – opið verður frá kl. 15:00. Við munum birta daglegar uppfærslur um opnunartíma […]

ECCO- púttmótaröðin 2025 – Lokastaðan
Keppni er lokið á Ecco púttmótaröðinni, sem er púttmótaröð karla hjá Golfkúbbi Reykjavíkur. Jónas Gunnarsson er besti púttari Golfklúbbs Reykjavíkur 2025, sigraði nokkuð örugglega ungu drengina úr liði 1 sem skipuðu annað og þriðja sætið. Eftir umspil við lið 4, eins og í fyrra, varð lið nr. 1 nr. 1. Þessi tvö lið höfðu nokkra […]

Forskot afrekssjóður úthlutar styrkjum til sex kylfinga – þrír frá Golfklúbbi Reykjavíkur
Forskot, afrekssjóður, mun styðja við bakið á alls sex kylfingum á árinu 2025. Forskot hefur frá árinu 2012 úthlutað styrkjum til afrekskylfinga og er úthlutunin í ár sú 14. í röðinni. Að sjóðnum standa: Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið og Golfsamband Íslands. Frá stofnun sjóðsins hefur markmiðið verið að gera styrkþegum auðveldara fyrir að […]

Vilt þú slást í hóp eftirlitsmanna í sumar?
Við leitum eftir stundvísum, glaðlyndum og samviskusömum einstaklingum sem eru ábyrgðarfullir og búa yfir ríkri þjónustulund ásamt hæfni í mannlegum samskiptum. Auglýsum eftir fólki til starfa á báða velli félagsins, bæði fullt starf og hlutastarf í boði. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Kostur er ef umsækjendur hafa einhverja þekkingu á golfíþróttinni […]

ECCO-púttmótaröðin 2025 – Staðan eftir 7. umferð
Þá er þessu að ljúka og aðeins lokaumferðin eftir sem fram fer FÖSTUDAGINN 14. MARS. Fimmtudaginn næsta notið þið til æfinga og komið sterkir til leiks daginn eftir. Athugið lokaumferðin er á næsta föstudegi svo það sé sagt. Magnús Guðmundsson (26) var í annað skiptið á mótaröðinni með besta skor kvöldsins, 53 pútt, og kom […]

Ecco púttmótaröð karla – staðan eftir 6 umferðir
Meistari síðustu ára, Páll Birkir Reynisson, minnti rækilega á sig í gær og ætlar greinilega að verja titilinn 3ja árið í röð. Hann lék langbest allra á aðeins 50 púttum. Liðið hans lék einnig best og ef ég reikna þetta rétt þá eru lið 1 og 4 hnífjöfn og mér segir svo hugur að þau […]

ECCO-púttmótaröðin 2025 – Staðan eftir 5. umferð
Jæja piltar, nú eru fimm umferðir afstaðnar og nú er fjörið að byrja fyrir alvöru. Þeir sem alltaf hafa mætt henda út í næstu umferð sínum slakasta hring og sama gegnir um liðin og þá á staðan oft eftir að breytast verulega. Dæmi eru um að lið og eða einstaklingar hafi bætt sína stöðu all […]

Sigríður Guðmundsdóttir ráðin á skrifstofu félagsins
Sigríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin á skrifstofu félagsins og mun hefja störf um næstu mánaðarmót. Sigríður tekur við af Dóru Eyland sem hefur sinnt þjónustu- og markaðsmálum hjá félaginu undanfarin ár. Sigríður er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsfræði og er með meistarapróf í kennsluréttindum. Hún hefur síðastliðin 9 ár unnið sem umsjónarkennari og […]